Psalms 50

1Asafs-sálmur. Drottinn er alvaldur Guð, hann talar og kallar á jörðina frá upprás sólar til niðurgöngu hennar. 2Frá Síon, ímynd fegurðarinnar, birtist Guð í geisladýrð. 3Guð vor kemur og þegir ekki. Eyðandi eldur fer fyrir honum, og í kringum hann geisar stormurinn. 4Hann kallar á himininn uppi og á jörðina, til þess að dæma lýð sinn: 5,,Safnið saman dýrkendum mínum, þeim er gjört hafa sáttmála við mig með fórnum.`` 6Þá kunngjörðu himnarnir réttlæti hans, því að Guð er sá sem dæmir. [Sela] 7,,Heyr, þjóð mín, og lát mig tala, Ísrael, og lát mig áminna þig, ég er Drottinn, Guð þinn! 8Eigi er það vegna fórna þinna, að ég ávíta þig, brennifórnir þínar eru stöðuglega frammi fyrir mér. 9Ég þarf ekki að taka uxa úr húsi þínu né geithafra úr stíu þinni, 10því að mín eru öll skógardýrin og skepnurnar á fjöllum þúsundanna. 11Ég þekki alla fugla á fjöllunum, og mér er kunnugt um allt það sem hrærist á mörkinni. 12Væri ég hungraður, mundi ég ekki segja þér frá því, því að jörðin er mín og allt sem á henni er. 13Et ég nauta kjöt, eða drekk ég hafra blóð? 14Fær Guði þakkargjörð að fórn og gjald Hinum hæsta þannig heit þín. 15Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.`` 16En við hinn óguðlega segir Guð: ,,Hvernig dirfist þú að telja upp boðorð mín og taka sáttmála minn þér í munn, 17þar sem þú þó hatar aga og varpar orðum mínum að baki þér? 18Sjáir þú þjóf, leggur þú lag þitt við hann, og við hórkarla hefir þú samfélag. 19Þú hleypir munni þínum út í illsku, og tunga þín bruggar svik. 20Þú situr og bakmælir bróður þínum og ófrægir son móður þinnar. 21Slíkt hefir þú gjört, og ég ætti að þegja? Þú heldur, að ég sé líkur þér! Ég mun hegna þér og endurgjalda þér augljóslega. 22Hyggið að þessu, þér sem gleymið Guði, til þess að ég sundurrífi ekki og enginn fái bjargað. 23Sá sem færir þakkargjörð að fórn, heiðrar mig, og þann sem breytir grandvarlega, vil ég láta sjá hjálpræði Guðs.``
Copyright information for Icelandic